Hefur viðgengis bankasukk á Íslandi undanfari ár!!!!!!!!!!!!!!

jæja, þá er komið að því, bankarnir farnir að týna tölunni í þeirri mynd sem þeir hafa verið þróast í. Ég spyr, afhverju réðu ekki þessir ofurbankastjórar við þessa bankakreppu. Ég spyr aftur, fyrir hvað fá þeir laun, það þarf engin að segja mér það að þessir menn sem hafa stýrt þessum bönkum gegnum tíðina séu það verðmætari en ég og þú, þeir eiga ekki þessi súperlaun skilið frekar en ég og þú. Eftir þessa yfirtöku ríkisins, ættu þessir ágætu menn að sjá sóma sinn í að taka pokann sinn og láta sig hverfa áður en þeir gera illt verra. Seinna meir ætti síðan að draga þetta hyski allt til saka og láta þá borga það sem þeir hafa STOLIÐ frá íslenska ríkinu og skattborgunum. Ég hef skömm að því að vera íslendingur, við erum búinn að fá óorð á okkur nánast hvar sem er í heiminum.

Það hefuð komið niður á mér og minni fjölskyldu, eins og svo mörgum öðrum, þetta bankasukk. Þann 22 sept var fyrirvinnu heimilisins sagt upp hjá Landsbankanum eða var það kannski Grandbankinn. Síðan þá hefur allt leikið á reiðiskjálfi, við eins og margir Íslendingar sjáum við láninn okkur éta upp eignina okkar sem við eru búinn að vera að reyna að eignast síðan við fórum að búa. Vitandi það að hafa ekki vinnu, til að borga af okkar lánum og einnig það að fá kannski ekki vinnu, lofar ekki góðu. Í reiði minni fann ég Tekjublað frjálsrar verslunar 2008 og ætla að telja upp nokkra starfsmenn í fjármálageiranum nafngreina og segja frá tekjum þeirra á mánuði. Fyrstan skal nefna: 

Hreiðar Már Sigurðsson forstj. Kaupþing 61.867.000 er þetta heilbrigt, er hann svo verðmætur. 

Lárus Welding forstjóri Glitnis 26.458.000- hvernig fór fyrir bankanum, dugðu launin hans ekki til að rétta bankann við aftur.

Atli Atlason titlaður framkv.stj. veit ekki betur en hann sé starfsmannastjóri Landsbankann 15.830.000, halló hvernig er þetta hægt.

Sigurjón Þ. Árnason bankastjóri Landsbankans 12.648.000.- (kemur síðan í sjónvarpið og blæ sig út og segir að einstaklingar hefðu átt að fara varlega í þessari þennslu. Ég veit ekki betur en starfsmenn Landsbankans hefðu hlaupið um Kringluna á sínum tíma til að pranga VÍSAKORTI inn á dóttur mína sem nýlega var orðið 18 ára, barnið sagði nei og aftur nei, en hún fékk samt kortið sent heim. (skömm á þessum vinnubörgðum)

Ég gæti setið lengi hérna og sett inn mörg nöfn. En þetta lið ætti að skammast sín og vonandi fá þeir sinn dóm þegar þar að kemur.

Ísbjörn no 2

Það er orða sönnunn, það er gott að búa í Skagafirði, þó launin séu lá , matvara og útsvar hvað hæðst. Það hefur sýnst sig undafarið að það er ekki bara mannfólkið sem sækjist eftir vera í Skagafirði því það eru einnig ísbirnir. En satt best að segja er ég orðin mjög þreytt á þessu ísbjarna tali daginn út og daginn inn, ég varð óskaplega feginn þegar hann síðan fór yfir móðuna miklu. Þessar skepnur eiga ekkert heima hérna eða í einhverjum dýragörðum erlendis, þau eiga bara að vera heima hjá sér. Mér finnst alveg fáranlegt að flytja hann til Grænlands, hann hefði varla verið komin út úr búrinu þar þegar hann hefði verið drepinn, því aukið var við fjöldann af ísbjörnum sem þar mátti veiða, hvernig er það er hann ekki annars útrýmingarhættu (mér finnst það vera búið að lymja í heyrunum á mér síðasta hálfan mánuð).  Jafnframt finnst mér skrýtið hvað ísbjörninn mátti valsa um æðavarpið um daginn, eru æðarkollurnar ekki friðaðar líka? eða voru þær ekki friðaðar rétt á meðan ísbjörninn var þarna. Sem sagt friðað dýr eða borða önnur friðuð dýr hvar voru dýravendunarsinnar á meðan. Ég hefði stutt þá hugmynd sem kom frá bloggaranum Vilborgu Traustadóttur að fara með hann í Öskjuhlíðina eða Heiðmörk, það væri fínt fyrir þetta ágæta fólk sem blæs sig út þegar eitthvað svona kemur upp á, það yrði fín æfinga til að handsaman kauða. Einnig ætti að setja einhver lög og reglur um ísbirni sem koma hingað, (muna eftir vegabréfinu væri kannski ein) en einum frænda mínum honum Kristjáni Eiríkssyni komst svona að orði:

Leyft skal að drepa dýrin grimm,
dáindis fögur og mikils virði,
eftir að þau hafa etið fimm
óðalsbændur í Skagafirði. 

kveðja úr fegursta firði landsins Skagafirði

PS. En það eru allir velkonmir í Skagafjörðin

Ísbjörn í Skagafirði

Ísbjörn, já að heyra þetta í 10 fréttum í morgun að ísbjörn væri á Þverárfjallinu, fannst mér að þetta væri eitthvert gabb og fór að tala við einn vinnufélagann minn og spurði hann hvað hann héldi um þessa frétt, hann var sammála mér að þetta væri einhverskonar gabb. En ég fór síðan að fylgjast með vefmiðlum og sá að þetta var ekki gabb og að þetta skildi vera svona nærri eins og vera bar. Að fylgjast með múæsingi í fjölmiðlum og heyra og lesa um það sem fólki dettur í hug að setja út úr sér varðandi þetta ísbjarnarmál. Ég bý á Sauðárkróki og fór sjálf um þetta svæði í gær um kl. 19:00, á þessu svæði er stutt til byggðar hvort sem það er út á Skaga,  á Krókinn eða hreinlega vestur í Húnavatnssýslu. Það er stutt á skíðasvæði okkar Skagfirðinga, fólk fer í berjamó á þessu svæði, þarna fer fólk í ýmiskonar gönguferðum, það er farið í hestaferðir um þetta svæði og síðast en ekki síst er þetta afrétt og er það fyrir kindur og hesta og þarf af leiðandi fer fólk í göngur á þetta svæði. Mér finnst alveg skelfilegt hvernig fólk lætur varðandi þetta, best væri að þetta ágæta fólk sem hefur hvað hæðst komi og reddi hlutunum ef það getur ekki skilið þær aðstæður sem gæti hafa skapast í þessu tilfelli. Ég vildi sjá hvernig þetta fólk myndi bregðast við ef það mætti ísbirni á götum Reykjavíkuborgar. Að heyra í sjónvarpinun áðan á stöð 2 þar sem Þórunn Sveinbjörnsdóttir og Álfheiður ræddu um þetta, að hlusta á þegar Álfheiður sagði “þetta er ekki nema 250 kíló” en hvað getur þetta 250 kíló dýr gert, jú það getur ráðist á fólk og hreinlega drepið það (hvað getur hestur gert og hann eru ca þetta þungur, hann hefur alla vegana ekki drápseðli í sér eins og björninn hefur) Berum saman hvítabjörn og skógarbjörn (hvað gerir skógarbjörn þegar hans kemst til byggað, ræðst á híbýli fólks í leit að æti). Ég held að fólk sem hugsar ekki nema bara rétt fram á nefið á sér, ætti að víkka sjóndeildar hringinn hvað ýmis mál varðar. Það hefði kannski ekki orðið upp fótur og fit ef þetta aumingja dýr hefði drepið manneskju, hvað segja þetta ágæta fólk við því. 

kv. Hafdís

Siðferði íþróttaþjálfarans

Þjálfari þarf að hafa margt í huga við þjálfun, það er ekki öllum gefið að verða þjálfari t.d. í knattspyrnu. Það sem þjálfarinn þarf að hafa í huga snýr jafnt að yngri sem og eldri iðkendum. Ég held að þjálfarar ættu að byrja á því að lesa yfir siðfræði gagnvart sjálfum sér og öðrum og reyna að meðtaka hvar þar stendur. Í gegnum árinn hef ég orði vitni t.d. í knattspyrnuþjálfun að þjálfari mismundar og leggur nánast í einelti iðkendanda sem hann er að þjálfa. En eins og kemur fram í bæklingi sem gefið er út af Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, þar segir að starf þjálfara sé margþætt og langt frá því að vera einfalt.  Hegðun þjálfarans og samskiptamynstur gagnvart iðkendum er stór þáttur í starfi hans og þann þátt ber að vanda ekki síður en aðra þætti. Þar sem um yngri iðkendur er að ræða er uppeldislegt hlutverk hans mikið og samskiptin hafa mótandi áhrif t.d. hvað varðar félagslega mótun. Þessar hliðar á þjálfarastarfinu er mikilvæt að skoða vel og hafa í huga þegar ráð á þjálfara eða meta skal starfið. Ætla má að að góður uppeldis- og félagslegur árangur auki líkur á íþróttalegum árangri því allt helst þetta í hendur þegar upp er staðið. Rétt er það að geta þess að árangur á uppeldis- og félagssviði er erfitt að meta og eins er því miður oft einblínt á íþróttalegan árangur þegar störf þjálfara eru metin. Af þessu leiðir að þjálfarinn er fyrirmynd þeirra sem hann þjálfar. Oft er sú fyrirmynd það sterkur þáttur í hugum iðkenda að allt sem þjálfari segir eða gerir er hið eina rétta og á stundum jafnvel tekið fram yfir uppeldislegar leiðbeiningar annarra uppalenda.                                                                                                                                                                      Með þessu ættu félögin að sjá sóma sinn í því að skilda alla þjálfara að kynna sér siðferði íþróttaþjálfarans. Einnig ættu félögin að hafa það að leiðarljósi að ráða ekki foreldra sem þjálfara til að þjálfa börnin sín í fótbolta. Og íþróttaþjálfarinn ætti að hafa þetta að leiðarljósi: ÞJÁLFARI SEM ER MEÐVITAÐUR UM HLUTVERK SITT OG ÁBYRGÐ, Þ.E. AÐ ÞAÐ SNÚIST UM MEIRA EN ÍÞRÓTTALEGAN ÁRANGUR, Á MEIRI MÖGULEIKA Á AÐ VERÐA FARSÆLL Í STARFI.

Kv. Hafdís

Hvítasunnuhret

Í dag fór ég til Keflavíkur og til baka aftur. Á ferð minni suður keyrðum við fram á árekstur sem átti sér stað á Holtavöruheiðinni, og þegar við síðan komum til baka var verið að hífa bíl upp á vörubíl sem lent hefði utan vega. Eins og veðrið var í dag, gaf það alveg tilefni að bílar væru enn á vetrardekkjum. Hvað er annað hægt að kalla þetta en Hvítasunnuhretið

Hafdís

Hringtorg!!!!

Ég velti einum hlut alltaf jafn mikið fyrir mér þegar ég fer til Reykjavíkur og það eru hringtorgin sem eru á leiðinni sem eru 10 alls héðan frá Sauðárkróki til Reykjavíkur og þá tala ég að fyrstu brúnni sem við keyrum undir á leið okkar inn í borgina. Hringtorg eru þarfa þing, ég geri mér alveg grein fyrir því og eru þau nausynleg sumstaðar. Að keyra inn í höfuðborg landsins af Vesturlandsvegi þá eru 7 hringtorg, hvers á maður að gjalda. Ó, jú svima, jafnvægitruflanir og ógleði, og með þennan vanlíðan keyrir maður inn í sjálfa höfuðborgina. Ég ætla að vona að það verði ekki (langt í þennan nýja veg sem stendur til að leggja(Sunda??), en er í einhverri bið.

kv. Hafdís

Nato hvað?

Í ákveðnum fréttamiðli, var verið að tala við okkar ágæta utanríkisráðherra/freyju um Nato, álver ofl. Ef mig minnir ekki, þá var þessi ágæti ráðherra/freyja ásamt fleirum hvað mest á móti því að það væri her hér landi, nú er hann farinn af landibrott, þá skellir þessi ágæti ráðherra/freyja sér upp í flugvél og flýgur á fund Nato til að hlýða á og taka þátt í vopnaumræðum. Ég segi bara Nato hvað? Mig minnir líka að þessi ágæti ráðherra/freyja gagrýndi mikið ferðalög fyrrum ráðherra, ég spyr hvað er þessi ráðherra/freyja búinn að vera mikið á ferðalögum síðan hún tók við?

Kv. Hafdís

London

jæja, þá er það heimsborgin London.  Haldið verður á vit ævintýrana föstudagsmorgunin 14 mars og um hádegisbilið þann dag ætti ég að vera að gangandi á enskri grund.

kv. Hafdís

Fló á Skinni

Þann 5 mars tók Arnar Skúli sonur minn bílprófið og stóð það með glans-Til hamingju.

Í dag var ég á Akureyri og skellti mér á leiksýningum hjá Leikfélagi Akureyrar og sá Fló á skinni, þetta var alveg frábær sýning og ég mæli með að fólk sjái þessa sýningu. Eins og einn leikarinn kemst að orði í sýningunni “hafa gaman”. Þessi sýning eru margir plúsar 

Þegar sýningunni lauk þá var lagt af stað vestur yfir heiði, en við bæjarjaðarinn á Akureyri stóð lögreglan í stórræðum við að stoppa bílana sem ýmis var að koma í bæinn eða fara úr bænum og var að kanna ástand ökumanna og voru allir ökumenn látnir blása.  Lögreglan fær stóran plús fyrir þetta framtak og það ættu aðrir að taka þetta upp líka.

kv. Hafdís

1. mars 2008

Dagurinn í dag er einnig minnistæður fyrir mig að öðru leyti að bjórinn var leyfður. Þann 1. mars 1989 eignaðist ég frumburði Sunnu Björk, þannig að þetta er mjög góður dagur. Til hamingju með daginn Sunna mín. 

En ég get nú ekki annað en minnst á þennan óróleika í fjámálum sem virðist einkenna okkar samfélagi í dag. Það er ekki opnaðu sá fréttamiðill að allt sé ekki að fara á verri veg hjá þeim. En ég spyr hverjum er það að kenna? Ekki er það hinum almenna borgara kenna sem rétt hefur fyrir sig og sína. Ég held að þessi fjármálafyrirtæki ættu að líta sér nær, eitt gott dæmi hjá þeim var þegar þau ruddust inn á markaðinn með látum og ætluðu að söðla undir sig húsnæðislánin, en hvernig fór fyrir þeim, eru þau ekki hætt að lána til húsnæðiskaupa. Svo á Seðlabankinn að hlaupa undir bagga með þeim og lækka sýrivextina eða sem sagt bjarga þeim. Ég spyr þá eru þessi ágætu fyrirtæki tilbúin að hlaupa undir bagga með fólkinu af götunni og lækka vextina hjá því, ef illa gengur. Fara svo fram á að leggja íbúðalánasjóð niður, það er nú byggð fyrir utan borgarmörkin þó svo að byggðin sé farin að teygja sig norður. Ég tel að það séu orðin forréttindi að fá að búa út á landi og það hljóta að einhverjir að vera sammála mér.

Kv. Hafdís